=)

Auglýsing

Könnun

Hvort geng ég með strák eða stelpu?

Prófíll

  • Nafn: Halla Ólöf Jónsdóttir
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: Verslunarstjóri
  • Hjúskaparstaða: ekki laus:D
  • Um mig: ég er nokkuð Hress stelpa sem útskrifaðist úr MA í júní síðastliðnum:) Ég hef gaman að lífinu og reyni að njóta þess í botn:) ég er í Bootcamp og ræktinni þess á milli ! í dag er ég að vinna og safna peningum...:p svo er ég að hugsa um að læra sálfræði :)ég vinn mikið en svo hef ég líka smá tíma fyrir vini og vandamenn... án þeirra gæti ég ekki verið... ég á besta kærasta í heiminum og við búum saman í Mosfellsbæ:) fíla það í botn! við stefnum svo á að flytja til Akureyrar í febrúar eða Mars:D annars bara... lifðu hvern dag eins og hann sé síðasti dagur lífs þíns!
  • Annað: If you see a friend without a smile... give him one of yours! Be sure to get what you like or you´ll be forced to like what you get!

HÓJ + NBM

allskonar myndir...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

...

Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti,sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka

Einar Ben - Einræður Starkaðar

Leit

loksins... smá blogg

28. júní 2007 klukkan 15:36
halló aftur! það er að verða alveg skuggalega langt síðan ég bloggaði eitthvað af viti...!
ég er búin að útskrifast og loksins orðin stúdent og ég fíla það í botn!
í gær flutti ég suður til Nikka:) við búum í Garðabæ og erum svona að koma okkur fyrir:) systir hans og pabbi hennar búa með okkur. ég er búin að nota daginn í dag til þess að pakka uppúr öllum ferðatöskunum mínum og ég skil bara ekki hvað ég á mikið af fötum :) rosalegt hvað maður safnar að sér fötum :) 
Ég útskrifaðist með ágætis einkunn og fékk allskonar hluti í stúdentsgjöf... ég fékk t.d. bækur og myndavél eins og þið takið kannski eftir ef þið skoðið myndaalbúmið hjá mér...:) ég á alveg helling í viðbót sem ég get sett inn á netið:)
síðustu helgi fór ég í 2 skírnarveislur. Kata og Jóri skírðu Litla stubbinn sinn Mikael Árna og svo var Alma Kristín skírð á sunnudaginn. Ég er guðmóðir hennar og er sko stolt af því að vera guðmóðir svona gullmola:) ég söng fyrir þau bæði og held að það hafi tekist nokkuð vel þrátt fyrir stuttan undirbúning... ég er svo pro... eða eitthvað!
Á morgun byrja ég í nýju vinnunni minni hjá ávaxtabílnum, er nú farin að hlakka soltið til! það verður örugglega rosa gaman að prufa eitthvað nýtt en svo verð ég kannski í auka vinnu um helgar eða aðra hvora helgi... sótti um smá aukajobb í sjoppu:)
ég nenni ekki að blogga lengra í dag... held ég fari frekar að gera eitthvað gáfulegt eins og kannski fara í sund í góða veðrinu hérna í reykjavík á meðan það er...:) ekki svo oft sem það skeður!
þangað til næst...
Halla
Halla Ólöf Jónsdóttir
Gaman að sjá nýtt blogg hér ;) Alltaf gaman að heyra smá fréttir úr hversdagsleikanum!
06. júlí 2007 klukkan 10:01
Klukk! haha! nú þarftu að játa á þig 8 syndir og klukka síðan aðra 8. múhahaha
14. júlí 2007 klukkan 19:23
Valdi
 
Mættir samt alveg vera duglegri að blogga
19. júlí 2007 klukkan 01:01
Valdi
 
ekkert blogg á leiðinni hjá þér stelpa????
30. júlí 2007 klukkan 22:29

Skrifa athugasemd