=)

Auglýsing

Könnun

Hvort geng ég međ strák eđa stelpu?

Prófíll

  • Nafn: Halla Ólöf Jónsdóttir
  • Stađur: Akureyri
  • Atvinna: Verslunarstjóri
  • Hjúskaparstađa: ekki laus:D
  • Um mig: ég er nokkuđ Hress stelpa sem útskrifađist úr MA í júní síđastliđnum:) Ég hef gaman ađ lífinu og reyni ađ njóta ţess í botn:) ég er í Bootcamp og rćktinni ţess á milli ! í dag er ég ađ vinna og safna peningum...:p svo er ég ađ hugsa um ađ lćra sálfrćđi :)ég vinn mikiđ en svo hef ég líka smá tíma fyrir vini og vandamenn... án ţeirra gćti ég ekki veriđ... ég á besta kćrasta í heiminum og viđ búum saman í Mosfellsbć:) fíla ţađ í botn! viđ stefnum svo á ađ flytja til Akureyrar í febrúar eđa Mars:D annars bara... lifđu hvern dag eins og hann sé síđasti dagur lífs ţíns!
  • Annađ: If you see a friend without a smile... give him one of yours! Be sure to get what you like or you´ll be forced to like what you get!

HÓJ + NBM

allskonar myndir...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

...

Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Ţel getur snúist viđ atorđ eitt.
Ađgát skal höfđ í nćrveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti,sem brast
viđ biturt andsvar, gefiđ án saka.
Hve iđrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verđur tekiđ til baka

Einar Ben - Einrćđur Starkađar

Leit

bara smá blogg...:)

26. október 2008 klukkan 11:24

hæhæ... mætti halda að ég væri hætt að blogga... enda er ég vægast sagt löt við það!
Í dag snýst lífið meira og minna um að bíða eftir bumbubúanum okkar...:) en ég finn mér nú eitthvað að gera til að stytta biðina...:) í dag eru 34 dagar til stefnu, er gengin 35 vikur og 1 dag í dag.

Ég er í söngnámi 2svar í viku í tónlistarskólanum og gengur bara vel, stefni á að taka grunnstig í vor!

Eignaðist litla frænku 27. september síðastliðinn, hún var skírð í gær og fékk nafnið Ragnhildur. Hérna er ein mynd af henni síðan í gær... sofnaði eftir kirkjuna:)

Ragnhildur sofandi

Annars er voða lítið í fréttum... það er allt að drukkna í snjó hérna á Akureyri og brjálaður skafrenningur búinn að vera í nótt og í dag! mér finnst samt eitthvað kósý við svona veður... langar líka stundum bara út að leika mér í snjónum=)

Nikki er alltaf að vinna hjá Ölgerðinni og líkar það bara vel, alveg að fíla að keyra stóra bíla...!
Erum búin að fá/kaupa fullt af barnadóti. erum komin með svefnkerru/Vagn, bílstól, rimlarúm, skiptidýnu og bala, ömmustól og svo erum við búin að kaupa soltið af krúttlegum litlum fötum :) hlökkum bara svo til að fá krílið í heiminn...! getum varla beðið! en krílið kemur bara þegar það er tilbúið:)

en læt þetta duga í bili... fullt af myndum á http://masonjr.barnaland.is

kv. Halla og bumbukríli..:)

Halla Ólöf Jónsdóttir
Engin athugasemd

fréttir:)

19. júní 2008 klukkan 20:42
hææh:) loksins blogga ég smá:) hef ekki bloggað síðan í mars!
Við erum semsagt flutt til Akureyrar aftur og erum búin að búa hjá mömmu síðan við komum í enda mars. Við erum svo búin að fá fína íbúð til leigu sem við flytjum í um mánaðarmótin. Eins og flestir vita kannski þá eigum við Nikki von á litlu kríli í lok nóvember og erum bæði alveg í skýjunum með það!Svalur Er komin tæpar 17 vikur á leið og líður bara vel:)
Ég er að vinna í accessorize á glerártorgi og Nikki hjá Ölgerðinni sem bílstjóri. Erum bæð að fíla okkur vel í vinnunum og svo er fínt að vera hérna á Akureyri í rólegheitunum...
Valdi var hjá okkur í viku og fór í gær... alltaf gaman að fá svona heimsóknir!
Ég átti eins árs stúdentsafmæli 17.´júní og hélt uppá það ásamt mörgum öðrum í íþróttahöllinni 16. júní... fengum mjög góðan mat og skemmtiatriði, hvítu kollarnir fengu að fjúka um miðnætti og svo var ball fram á nótt.
jæja... ætla ekki að hafa þetta mikið lengra en læt fylgja eina mynd af krílusi...:) erum svo með barnalandssíðu... http://masonjr.barnaland.iskrílið okkar 15 vikna...
kv. Halla og bumbubúinn:)
Halla Ólöf Jónsdóttir
4 athugasemdir

smá fréttir...:D

14. mars 2008 klukkan 11:29

hæhæ! það er allt ágætt að frétta af mér:) Ég er enn í mosó og hef það fínt með
Nikka mínum:) Er enn að vinna í Foldaskála en það tekur enda í næstu viku :D satt að segja er ég hálf fegin en þetta eru svona blendnar tilfinningar... hehe segi svona. Þessi vinna hefur sína kosti og sína galla!
eftir páska ætlum við að flytja norður, við munum búa heima hjá mömmu fyrst um sinn að minnsta kosti. Nikki er nýlega búinn að klára meiraprófið og trailerinn og svo fer kallinn að vinna við að keyra fyrir norðan, en valið er á milli flytjanda og ölgerðarinnar eins og er:) það kemur bara í ljós á næstu vikum eða dögum:D
Ég er ekki komin með neitt starf ennþá en er að bíða eftir svörum og leita að fleiri störfum. Ég verð kannski bara að vinna í sumar og svo getur vel verið að ég skelli mér í háskólann í haust. Langar dáltið í sálfræði en ég er að reyna að gera upp við mig hvort það sé alveg í rétta átt... nenni nefnilega ekki að byrja á einhverju sem ég klára svo kannski ekki ef mér finnst það svo ekki áhugavert eða eitthvað... en þetta eru bara smá vangaveltur... eðlilegar vona ég!:)

langar líka rosalega mikið að fara í söngnám... er búin að taka nokkra einkatíma hjá Ingu Bachmann í domus vox, og ég elska að syngja svona ein og einbeita mér að minni rödd og læra að hafa almennilega stjórn á henni.

En jamm... þetta voru bara svona smá fréttir:) ofboðslega langt síðan ég hef bloggað:D er í fríi í dag til 5 svo fer ég á kvöldvakt... svo er planað djamm eftir það í borg óttans...:D ætlum að vera heima hjá Valda og svo eitthvað niðrí bæ:D verður örugglega stuð fyrir mig að mæta beint úr vinnunni:D  yay...
en er að fara núna að borða með Regínu minni:p þarf að hafa mig eitthvað til áður svo ég segi bara
bless í bili...:D

Halla Ólöf Jónsdóttir
Engin athugasemd

Hver gerir svona?:(

16. janúar 2008 klukkan 18:33
Halla Ólöf Jónsdóttir
Engin athugasemd

bráđum nýtt ár...:)

30. desember 2007 klukkan 13:12
já... þetta er nýtt blogg:) ég hef ekki verið svona dugleg síðustu mánuði...:D
í dag er kominn 30. desember... í dag á mamma mín 40 ára brúðkaupsafmæli! afi minn hefði orðið áttræður í dag og í dag verður litla frænka mín skírð í Akureyrarkirkju, við Nikki erum svo löt að við nennum ekki í kirkjuna en við kíkjum í veisluna á eftir:) sú stutta heitir Sunneva Guðmundsdóttir og er eitt af ömmubörnum Sillóar systur mömmu.
Nikki ætlaði að koma norður á föstudagskvöldið en svo birtist hann allatíeinu hérna á fimmtudagskvöldið...:) alltaf nær hann að plata mig... en óvænt ánægja engu að síður:p
Ég fór með ömmu í búðir á fimmtudaginn, hún vildi endilega gefa okkur Nikka eitthvað saman... og fyrir valinu varð pönnuköku panna og spaði:D algjör snilld, og ég bakaði pönnukökur í gær:) þær voru nú bara fínar þó ég segi sjálf frá:p
á föstudagskvöldið horfðum við Nikki og Anna á næturvaktina og borðuðum saman hérna heima... snilldarþættir þessi næturvakt! í gær komu Steinar og Logi í heimsókn/pössun og ég bakaði pönsur og við horfðum á Stellu í orlofi, hún er bara klassi!
æji.... þetta fer að verða frekar lélegt blogg... en ég hef bara frá svo litlu að segja:)
ég ætla að drífa mig í sturtu svo ég verði ekki eins og myglusveppur í skírnarveislunni:D

Halla þrettándaálfur:)
Halla Ólöf Jónsdóttir
Engin athugasemd

Jólin jólin allstađar:)

25. desember 2007 klukkan 12:05

já það er rétt... ég er lifandi ennþá:)
ég er loksins komin í FRÍ:D þó það nú væri um jólin... og ég ætla að hafa það extra gott og slappa af alveg fram yfir áramót:) en svo verð ég að byrja að vinna aftur 2. janúar. Ég kom bara ein norður því Nikki er í sumarbústað með mömmu sinni og systur og fleira fólki, ég sakna hans nú svolítið en hann ætlar nú að koma til mín á föstudaginn svo ég bíð ekki mjög lengi eftir honum
Ég er semsagt MJÖG fegin að vera komin í frí því ég var alveg að verða rugluð af vinnu! ég er sko búin að vinna milli 6 og 700 tíma síðan í október þ.e.a.s. alltaf yfir 200 tíma á mánuði sem mér finnst aðeins of mikið í langan tíma allavega þegar maður er með alla ábyrgðina sem ég hef, en auðvitað þroskast maður við þetta allt og lærir ýmislegt.
Ég kom norður aðfaranótt þorláksmessu, ég fékk far hjá Braga (my boss) og við lögðum af stað um hálf 6 á laugardaginn. Við vorum hinsvegar ekki komin til Akureyrar fyrren rúmlega 3 um nóttina. Þetta varð semsagt rúmlega 9 klukkutíma ferðalag hjá okkur, ekki vegna veðurs heldur vegna þess að bíllinn hans bilaði og við máttum bíða í borgarnesi í um 4 klst. eftir viðgerðarmönnum frá selfossi og svo biðum við eftir að þeir skoðuðu bílinn og gátum ekki lagt af stað frá borgarnesi fyrr en um kl. 11 við komum þangað klukkan hálf 7. Ansi langt stopp :) það sem var samt ömurlegast við þetta allt er að hann var á glænýjum bíl... sem bilaði svo baraHissa en við fengum gamla bílinn hans aftur og keyrðum á honum norður þegar við vorum búin að koma öllu draslinu okkar á milli bíla og við vorum sko alveg með slatta af dóti og jólagjöfum!:p við vorum farin að gera grín að því að við þyrftum að halda jólin í bílnum undir Hafnarfjalli, við vorum allavega með nóg af pökkum, hangikjöt, konfekt og smá gos... jólatónlist, bíllinn er það stór að við hefðum getað sofið í honum svo málinu hefði alveg verið reddað... en ætli það sé ekki skemmtilegra að vera heima um jólin hjá fjölskyldunni sinni:) en hitt hefði samt verið mjööög spes!;o)

Aðfangadagur var í gær... Við mamma borðuðum hjá Ingu í Ægisgötu og fengum alveg dýrindis hamborgarahrygg!:) svo var jólaís á eftir. sumir borðuðu minna en aðrir vegna rosalegs spennings yfir öllu jólapakka flóðinu, þar á ég að sjálfsögðu við Steinar, ekki skrýtið að maður sé spenntur þegar maður er 9 ára og veit að maður á stærsta pakkann undir trénu:)
Ég fékk kylie minogue ilmvatn og shower gel frá Ölmu minni:), 10000 kr uppí síma frá mömmu, geisladisk með Eivöru frá eyrarpúkunum mínum, sokkabuxur og eyrnalokka frá ömmu minni, The secret bókina frá Tengdó og Unni Elsu, geðveikt flotta eyrnalokka í stíl við hálsmenið mitt frá Nikka og svo var ég búin að fá 66°norður jakka frá honum líka:) svo fékk ég 1 kg konfektkassa frá vinnunni fyrir sunnan og svo komu Bragi og Daði til mín með ostakörfu á þorláksmessu:) voða sætir en ég var nú að vinna í nætursölunni fyrri hlutann af árinu og fékk þess vegna líka ostakörfu:):D Við nikki fengum saman, Brauðgrill frá mömmu, hrærivél frá Ægisgötuliðiðnu, handklæði frá Ernu stjúpmömmu Nikka, algjöra dúllumynd af Mikael Árna frá Kötu Jóra og Mikael, hjartalaga kertastjaka frá svíþjóð:), Bíóbrot spilið frá Regínu og ég fékk líka eyrnalokka frá henni... vona að ég sé ekki að gleyma neinu. en þetta er sko alveg dágóður slatti af gjöfum og ég er bara mjög sátt:) Takk fyrir mig og okkur!:*

Ég veit ekki hvað ég á að segja ykkur meira...
fyrir ykkur sem ekki vitið þá erum við flutt í Mosfellsbæ og búum núna með pappa hans Nikka:) það er bara fínt þangað til við flytjum norður í febrúar eða mars:) Nikki ætlar að taka meiraprófið núna eftir áramótin og þegar það er búið þá förum við norður:D hlakka svolítið til! það er stundum svolítið erfitt að vera langt í burtu frá fjölskyldunni sinni:) en ekki ómögulegt en það verður samt gaman að koma aftur norður.

jæja ég ætla að láta þetta gott heita í dag:) hafið það sem allra best um jólin og borðið eins og þið getið:D njótið jólanna og slappið af!:D
kv. Halla þrettándaálfur:)

Halla Ólöf Jónsdóttir
1 athugasemd

1 ár síđan... vá hvađ tíminn líđur hratt!

23. september 2007 klukkan 22:15
hæhæ;) seint blogga sumir en blogga þó...:) Saklaus ég og Nikki vorum að koma frá Akureyri rétt áðan:) það er alltaf gaman að koma heim annað slagið. Við gerðum nú ekki mjög mikið þar en hefðum átt að vera að gera mjög mikið... Mamma átti að fá nýju íbúðina sína afhenda á föstudagsmorguninn en svo reyndist hún ekki vera tilbúin og ekkert hægt að flytja... en þetta var góð slökun fyrir okkur í staðinn... við kíktum í bíó í gærkvöldi á Chuck and Larry og var alveg hægt að hlæja aðeins að henni:) Jón skellti sér líka norður í gær og fór með okkur í bíó... hann var svo samferða okkur suður í kvöld... það var bilað rok á kjalarnesinu og sáum við einn camper og einn frekar stóran jeppa út í kanti á hvolfi... enda fóru vindhviðurnar uppí 44 m/sek þegar mest var... Akureyri var fín ... stórt meninngarhús er farið að rísa... samt fannst mér skemmtilegast að hitta fjölskylduna mína aftur... Logi hefur ekki breyst neitt lítið og er alltaf jafn mikið krútt! ljóshærður prakkari;) tíminn líður hratt... hann verður eins árs í næsta mánuði:) við hittum Kötu og Jóra og skoðuðum nýju íbúðina þeirra... við komium alltaf svo seint í heimsókn að Mikael var bara sofandi en ég kíkti aðeins á hann og hann hefur stækkað hratt greinilega... algjört krútt...;)
ég er að skipta um vinnu bráðlega... er búin að segja upp hjá ávaxtabílnum eða einum grænum þar sem ég vinn víst núna... ávaxtabíllinn flutti framleiðsluna nefnilega til þeirra og við fengum vinnu þar líka...  ég er nýlega líka búin að skipta um aukavinnu og vinn núna í grafarvogi í foldaskálanum í staðinn fyrir Garðabæ... svo flytjum við trúlega bráðum ... erum að leita okkur að íbúð einhverstaðar til að leigja. Það reddast vonandi fljótlega, er alveg viss um það...
Eitt aðalmál þessa dags er að í dag er akkúrat eitt ár síðan ég og Nikki minn hittumst fyrst:) mjög merkilegur dagur fyrir okkur:) gaman að hugsa til baka og brosa... :D
hjarta...erum við ekki krúttleg:)
erum við ekki sæt saman:* mér finnst það allavega!
Lilja systir á líka afmæli í dag:) orðin 39 ára konan:) á besta aldri sko!
sendi þér knús og afmæliskossa ef þú lest þetta stóra systir!;):*:*:*


en góða nótt í bili... =)

Halla:)
Halla Ólöf Jónsdóttir
3 athugasemdir

fréttir úr fríinu:D

09. ágúst 2007 klukkan 22:07
jæja þá er vika síðan ég bloggaði síðast:) rosalega er ég dugleg ... ég komst semsagt á netið hjá Sindra á Fáskrúðsfirði...
sjáum nú til... við fórum til Akureyrar á föstudaginn og vorum þar um helgina...:) snilld að koma heim aftur... það er samt rosalega skrítið að sjá húsið mitt núna þegar ég á ekki lengur heima þar... nýtt fólk þar en ég er ekki enn búin að venjast því að ég búi ekki þarna lengur, enda var ég búin að búa þarna síðan 1992 eða í 15 ár! mjög góður tími!
Við Nikki gistum hjá mömmu í íbúð sem hún er í í Kristnesi á meðan hún er að bíða eftir að fá íbúðina sína í Naustahverfinu... Valdi kom svo til okkar á sunnudaginn og kíkti með okkur á djammið... við fórum í froðupartý sem var alveg ágætt þangað til maður var að frjósa úr kulda og var rennandi blautur inn að beini... það var rosalega kalt! á laugardaginn fórum ég og Nikki í partý til írisar vinkonu Kötu og Jóra ásamt Kötu og Jóra að sjálfsögðu og eftir það fórum við með þeim heim að spila...:) ég Hitti Mentor skvísuna mína hana Amöndu á sunnudaguinn og við skelltum okkur í tívolí, fórum í 2 tæki sem voru vægast sagt pínu hræðileg! Þau voru samt skemmtileg á vissan hátt...:D takk fyrir skemmtunina Amanda mín ;)

á Mánudaginn fórum við frá Akureyri og keyrðum áleiðis til Ásbyrgis. Við tjölduðum þar og gistum eina nótt:) það er alveg ótrúlega fallegt þar og ég tók alveg helling af myndum þar... ég set þær bara inn síðar... Ég mæli alveg með því að fara í útilegu þar;) á þriðjudaginn var svo ferðinni heitið til Þórshafnar að heimsækja Hrafnhildi, þegar við komum þangað bauð Hrafnhildur okkur í Kaffi og æðislegar kökur og eftir kaffið fórum við í Sauðaneshúsið þar sem Afi hennar sér um safn sem er í húsinu. Hann sýndi okkur allt hátt og lágt og kunni margar sögur að segja okkur. Eftir skoðunarferðina fórum við í sund á Þórshöfn og svo út að borða :) fórum svo á "rúntinn" á Þórshöfn og settumst svo uppá tjaldstæði og spiluðum og kveiktum smá varðeld. í gær (miðvikudag) keyrðum við út á Langanes og skoðuðum eyðibýli og vitann sem er lengst út á nesinu! Vegurinn sem við keyrðum var í svona lala ástandi og fékk bíllinn hans Valda aðeins að finna fyrir því... ferðin tók um 4 tíma báðar leiðir... Þetta var samt sem áður góð lífsreynsla og gaman að sjá þetta allt...:D
um 4 leytið í gær lögðum við svo af stað til Fáskrúðsfjarðar... við stoppuðum á vopnafirði, Egilsstöðum og Reyðarfirði, Hittum m.a. afa hans Valda á Reyðarfirði. Gærkvöldið var snilld... við grilluðum hjá Sindra og fengum okkur aðeins í glas og þetta endaði svo með ferð á Bar bæjarins, við vorum þar til lokunar kl. 1 og röltum svo heim í góðu ástandi í geggjuðu veðri... :D Sindri var svo góður að lána okkur Nikka herbergið sitt og hann svaf í stofunni ásamt Valda:)
ég vaknaði um 10 í morgun og setti í uppþvottavélina síðan í gærkvöldi... veit ekki afhverju en mig vantaði skeið og það endaði með því að ég skolaði allt og setti í vélina... fékk mér mjög hollt cocoapuffs í morgunmat og lagði mig svo aftur til hálf1 en strákarnir vöktu mig þá til að fara á Reyðarfjörð að skoða álverið!:) við fórum á Reyðarfjörð og í álverið... Sindri lét okkur bíða í 45 mín. meðan hann var að redda bíl til að keyra með okkur um svæðið... Þetta er alveg gígantískt stórt og greinilega hátækni álver þarna á ferðinni... fórum í Krónuna og versluðum í matinn og ég skoðaði í nokkrar búðir þarna... það er mini mall á Reyðarfirði ótrúlegt en satt:D ég lagði mig aftur áðan... alveg í rúma 2 tíma... sofnaði með ipodinn minn í eyrunum...(ipodinn er nk. viðhaldið í sambandinu hehe;))
en ég held ég láti þetta gott heita af bloggi í bili enda eruð þið örugglega orðin þreytt af að lesa þetta allt...:) óvenjulega langt blogg! :D það er æðislegt að vera í fríi :D við vitum ekki alveg hvert við förum á morgun.... en það kemur í ljós... allavega eitthvað áleiðis til Reykjavíkur:) en meira seinna...
kveðja
Halla í fríi...:)Svalur
Halla Ólöf Jónsdóttir
5 athugasemdir

fríí...:D

02. ágúst 2007 klukkan 21:53
hæhæ:) ég er komin í frí í heila viku:) rúmlega viku meira að segja...! ég er að vísu að far að vinna í 2 tíma núna eftir korter en tja það er svo lítið...
það er allt fínt að frétta af okkur hérna í garðabænum... við vinnum eins og hestar þ.e.a.s. mjög mikið og njótum þess líka núna eftir að hafa fengið útborgað... allavega ég... (sumir áttu meiri ónýttan persónuafslátt en aðrir;) ) og er þetta allt saman mjög nice:)
Við Nikki stefnum á Akureyri á morgun einhverntíma og eftir helgina ætlum við ásamt Valda að leggja af stað austur og klára hringinn í kringum landið, við ætlum að stoppa hjá Sindra á reyðarfirði og líka hjá Hrafnhildi á Þórshöfn:) svo er hugmynd að stoppa í ásbyrgi eina nótt eða svo... og hitt er óákveðið... við höfum tíma fram á sunnudag í næstu viku svo við tökum því bara rólega og slökum á... ekkert stress! YNDISLEGT:D

Ég fékk iPod á sunnudaginn sem var útskriftargjöfin mín frá Nikka mínum :) hann er rosalega bleikur en jæja liturinn skiptir ekki öllu máli... ég fékk ekki að skipta honum svo að bleikt er fínt :D hann var btw keyptur í danmörku og þess vegna er ekki hægt að skipta honum hér.... en úps... ég verð að fara að koma mér í vinnuna!
ef þið lesið þetta... sjáumst á Akureyri um helgina eða einhverstaðar í náinni framtíð :D ég ætla að njóta þess í botn að vera í fríi:D

Halla....Svalur
Halla Ólöf Jónsdóttir
2 athugasemdir

loksins... smá blogg

28. júní 2007 klukkan 15:36
halló aftur! það er að verða alveg skuggalega langt síðan ég bloggaði eitthvað af viti...!
ég er búin að útskrifast og loksins orðin stúdent og ég fíla það í botn!
í gær flutti ég suður til Nikka:) við búum í Garðabæ og erum svona að koma okkur fyrir:) systir hans og pabbi hennar búa með okkur. ég er búin að nota daginn í dag til þess að pakka uppúr öllum ferðatöskunum mínum og ég skil bara ekki hvað ég á mikið af fötum :) rosalegt hvað maður safnar að sér fötum :) 
Ég útskrifaðist með ágætis einkunn og fékk allskonar hluti í stúdentsgjöf... ég fékk t.d. bækur og myndavél eins og þið takið kannski eftir ef þið skoðið myndaalbúmið hjá mér...:) ég á alveg helling í viðbót sem ég get sett inn á netið:)
síðustu helgi fór ég í 2 skírnarveislur. Kata og Jóri skírðu Litla stubbinn sinn Mikael Árna og svo var Alma Kristín skírð á sunnudaginn. Ég er guðmóðir hennar og er sko stolt af því að vera guðmóðir svona gullmola:) ég söng fyrir þau bæði og held að það hafi tekist nokkuð vel þrátt fyrir stuttan undirbúning... ég er svo pro... eða eitthvað!
Á morgun byrja ég í nýju vinnunni minni hjá ávaxtabílnum, er nú farin að hlakka soltið til! það verður örugglega rosa gaman að prufa eitthvað nýtt en svo verð ég kannski í auka vinnu um helgar eða aðra hvora helgi... sótti um smá aukajobb í sjoppu:)
ég nenni ekki að blogga lengra í dag... held ég fari frekar að gera eitthvað gáfulegt eins og kannski fara í sund í góða veðrinu hérna í reykjavík á meðan það er...:) ekki svo oft sem það skeður!
þangað til næst...
Halla
Halla Ólöf Jónsdóttir
4 athugasemdir